Forsíða >

Sækja hugbúnað >

Þjónusta og ábyrgð >

Sölustaðir >

Hafa samband >

-------------------------

MYNDAVÉLAR

IXUS
PowerShot
EOS
EF & EF-S linsur

VIDEOVÉLAR
Heimilisvélar
Atvinnuvélar

SKANNAR
Fyrir heimili og
á skrifborðið

Skjalaskannar fyrir
fyrirtæki


PRENTARAR
Bleksprautuprentarar
Ljósmyndaprentarar
Laserprentarar 

FJÖLNOTA PRENTARAR
Bleksprautuprentun
Laserprentun

TEIKNINGAPRENT
Teikningaprentarar
Stórmyndaprentarar

FAXTÆKI
Bleksprautuprentun
Laserprentun

LJÓSRITUNARVÉLAR
Litlir skrifstofu hópar
Meðalstórir skrifst.hópar
Stór fyrirtæki
Svarthvítar / Prenta í lit
Litalaserprentun

REIKNIVÉLAR
Borðreiknivélar með strimli
Vasa / borðreiknivélar án strimils
Skólareiknivélar

REKSTRARVÖRUR
Rekstrarvörur

linsur

Víðtækasta úrvalið af linsum
EOS myndavélar njóta þess að í boði er víðtækasta úrval af linsum í heiminum. Frá 14mm ofur gleiðhornalinsum og upp í 600mm ofur aðdráttarlinsur, uppfylla yfir 60 EF linsur þarfir allra ljósmyndara. Sjáðu heiminn út frá nýju sjónarhorni. Fangaðu sýn þína með augum EOS.

Þú getur nálgast EF & EF-S linsur hjá viðurkenndum söluaðilum Nýherja


Fastar linsur - Fixed Focal Length

Linsur með fasta brennivídd eru almennt skarpari og með hraðari ljósop heldur en linsur með breytilega brennivídd og eru allt frá mjög gleiðum linsum sem eru tilvaldar fyrir myndatökur innandyra og í landslagsmyndir upp í langdrægar linsur sem eru aðallega notaðar fyrir náttúrulífsmyndatöku, íþrótta- og fréttaljósmyndun.

Breytilegar aðdráttarlinsur - Zoom
Það getur verið mjög hentugt og þægilegt að hafa linsu með breytilegri brennivídd. Ljósop í þessum linsum er í sumum fast alla lengdina en aðrar eru með breytilegt ljósop þegar þú breytir brennivíddinni en þar sér TTL (through-the-lens) mæling sér um að reikna rétta lýsingu á myndinni.

Tilt-and-Shift
Þetta eru sérstakar linsur þar sem ,,tilt og shift" hreyfingar auka möguleika við ljósmyndun. ,,Tilt" hreyfingar gera þér kleift að ná breiðari fókusdýpt (depth of field), jafnvel á hámarks ljósopi og samt að vera með allt viðfangsefnið í fókus. ,,Shift" hreyfingar rétta trapísu áhrif sem koma fram þegar teknar eru myndir af t.d. háum byggingum þannig að viðfangsefnið virðist ekki vera skakkt eða brenglað.

Nærmyndalinsur - Macro
Nærmyndalinsur geta afhjúpað smáatriði sem væri ómögulegt að greina með auganu og veita nýtt sjónarhorn á mjög lítil viðfangsefni eins og skordýr eða krónublöð lítilla blóma.

Image Stabilisation - Hristivörn
Ákveðnar Canon EF linsur eru búnar Image Stabiliser tækni til að koma í veg fyrir hreyfingu sem eyðileggur skotið. Þessi tækni er sérstaklega gagnleg þegar teknar eru nærmyndir eða á hægum lokarahraða (shutter speed), við aðstæður þar sem ekki er hægt að nota þrífót.

Extenders - Margföldunarlinsur
,,Extender" eða margföldun er heiti á aðdráttarbreytum frá Canon. Þessir háafkasta aukahlutir margfalda hina raunverulegu brennivídd linsunnar um 1.4x eða 2x. T.d. ef 200mm linsa er með Extender 1.4x þá raunverulega brennivíddin 280mm en 400mm ef notaður er Extender 2x. Eingöngu er hægt að nota ,,Extenders" á EF 70-200mm f/2.8L USM, EF 70-200mm f/2.8L IS USM, EF 70-200mm f/4L, EF 100-400mm f/4.5-5.6L USM, EF 400mm f/4 DO IS USM eða föstum L linsum sem eru 135mm eða meira.

NÝHERJI HF - BORGARTÚNI 37 - SÍMI 569 7700 - www.nyherji.is