|
Með nýjustu kynslóð af litaskönnum frá Canon eru þér allir vegir færir. Eins og á við um allar vörur frá Canon þá eru skannarnir afrakstur þess að notandinn er hafður að leiðarljósi.
Markmið Canon er einfalt – að útvega búnað sem þú getur treyst á; með hraðvirkum, auðveldum og skilvirkum hætti.
CanoScan ljósmynda-, filmu og skjalaflatskannar bjóða upp á allt frá 35mm filmuskönnun og hið einstaka Z-Lid til að skanna bækur og tímarit í allt 48-bita upplausn og einn kapal fyrir USB tengi og afl.
Allt þetta í einu, nettu og notendavænu tæki.
|